Skilmálar

Skilmálar Vinklubburinn.is

1. Almenn ákvæði

Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu vinklubburinn.is sem er í eigu Vinklubburinn, Inc., skráð í Delaware fylki í Bandaríkjunum.  VSK númer félagsins á Íslandi er 146654. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur vinklubburinn.is annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Þessir skilmálar eru samþykktir við fyrstu vörukaup eða þjónustu. 

„Kaupandi“ er einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 20 ára „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki en lög um um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga þá við. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir. 

2. Upplýsingar um verð

Verð í vefverslun Vinklubburinn.is og í sendum markpóstum eru með virðisaukaskatti og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Vinklubburinn.is áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. Vinklubburinn.is mun hafa samband við viðskiptavin og bjóða nýja vöru eða endurgreiðlsu

3. Greiðslur

Hægt er að greiða með eftirfarandi leiðum á Vinklubburinn.is:

  • Kort: hægt er að greiða samtímis með öllum helstu debit- eða kreditkortum.
  • Apple Pay: Hægt er að greiða með Apple Pay í þeim farsímum sem styðja slíkar greiðslur í vefverslunum. 

    Allar greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt frá Stripe og/eða Shopify Pay.

    4. Skilaréttur

    Aðeins er tekið við vörum í óopnuðum umbúðum hjá Vinklubburinn.is nema um gallaða vöru sé að ræða. Ef vara er gölluð og henni skilað er varan endurgreidd að fullu innan tveggja vikna frá því að neytandi skilaði vöru. Vinklubburinn.is áskilur sér að sannreyna að varan sé gölluð.

    5. Annað

    Vinklubburinn.is áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, kaupanda verður tilkynnt um þær breytinar sem munu verða á þessum skilmálum. 

    6. Varnarþing

    Rísi upp ágreiningur um þessa skilmála má reka mál vegna þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr 91/1991.