Prosecco Rosé DOC Spumante

2.990 kr Venjulegt verð
Fjöldi

Ferskt rosé freyðivín

Einstaklega ljúft, ferskt og þurrt Prosecco freyðvín frá Prosecco hæðunum í Veneto héraðinu á Ítalíu. Sérlega falleg og vönduð hönnun á flöskum sem gaman er að framreiða. 

Freyðivínið er ljósbleikt á lit, með keim af vorblómum og ávöxtum. Ilmurinn er fágaður og ber keim af hefðbundnum vínþrúgum svæðisins.  Vínið er að stærstu leiti framleitt úr Glera þrúgunni en Pinot Nero rauðvínsþrúgunni er blandað saman til að laða fram hið fullkomna rósa freyðivín. 

Vínið er lífrænt ræktað og vegan.

Framleiðandinn

47 Anno Domini leggur í framleiðslu sinni áherslu á að blanda saman aldagömlum ítölskum hefðum í víngerð við nýsköpun í framleiðslu ásamt því að huga að heildarupplifun og fallegri hönnun.

Vínviðurinn hjá 47 Anno Domini nærist af frjósömum, leirkenndum jarðvegi, ríkum af steinefnasöltum og öll vínin búa yfir miklum persónuleika. Víngarðurinn hefur rætur sínar að rekja margar kynslóðir aftur í tíman, en í dag er framleiðslan nútímaleg og lífrænt vottuð.

Vínpörun

  • Reyktur fiskur
  • Ostar
  • Fordrykkur

Upplýsingar

  • Land: Ítalía
  • Svæði: Blandað
  • Þrúga: Glera (85-90%) & Pinot Nero (10-15%)
  • Árgerð: Blandað
  • Áfengismagn: 11,0%