Prosecco DOC Spumante Bio Vegan Extra-Dry

2.490 kr Venjulegt verð 2.990 kr
Fjöldi
Örfá eintök eftir - 3 eftir á lager

Háttíðlegt freyðivín

Einstaklega ljúft og ferskt Prosecco freyðvín frá Prosecco hæðunum í Veneto héraðinu á Ítalíu. Sérlega falleg og vönduð hönnun á flöskum sem gaman er að framreiða. Freyðivínið er strágult á lit, og loftbólurnar eru fínar og viðvarandi. Ilmurinn er fágaður og ber keim af ávöxtum og blómum. Extra-dry freyðivín er örlítið sætt, þrátt fyrir að nafnið bendi til annars en það inniheldur meðal magn af sykri sem jafnar út hátt sýrustig. Þetta gefur víninu sætan keim án þess að vera beinlínis sætt. 

Framleiðandinn

47 Anno Domini leggur í framleiðslu sinni áherslu á að blanda saman aldagömlum ítölskum hefðum í víngerð við nýsköpun í framleiðslu ásamt því að huga að heildarupplifun og fallegri hönnun.

Vínviðurinn hjá 47 Anno Domini nærist af frjósömum, leirkenndum jarðvegi, ríkum af steinefnasöltum og öll vínin búa yfir miklum persónuleika. Víngarðurinn hefur rætur sínar að rekja margar kynslóðir aftur í tíman, en í dag er framleiðslan nútímaleg og lífrænt vottuð.

Vínpörun

  • Fiskur
  • Skelfisur
  • Fordrykkur

Upplýsingar

  • Land: Ítalía
  • Svæði: Blandað
  • Þrúga: Glera (85-100%)
  • Árgerð: Blandað
  • Áfengismagn: 11,0% 
  • Vínið er lífrænt og vegan

Viðurkenningar

  • Luca Maroni: 92 point