Cava Brut Nature Gran Reserva (2019)

2.990 kr Venjulegt verð 3.490 kr
Fjöldi

Einstaklega metnaðarfullt cava

Hér er á ferðinni kröftugt og ferskt freyðivín sem er tilvalið í veisluna og fordrykkinn. Þrúgurnar eru tíndar af bestu vínviðum sem Sumarocca hefur upp á að bjóða og vínið hefur verið geymt á flösku í 3 ár eftir seinni gerjun. Ilmurinn einkennist af blómum, grasi, sítrus og framandi ávöxtum. Vínið er því þurrt en silkimjúkt með löngu eftirbragði. Brut Nature vín innihalda engan viðbættan sykur og hafa því hátt sýrustig sem endurspeglar hinum raunverulega karakter þrúgunnar.

Framleiðandinn

Sumarroca er einstaklega metnaðarfullur framleiðandi. Vínin eru lífrænt ræktuð eftir sömu aðferð og er notuð við Kampavínsgerð og Sumarroca hefur m.a. hlotið viðurkenningu sem besti Cava framleiðandinn. Öll vínin eru látin gerjast í að minnsta kosti 2 ár á flösku (seinni gerjun) og það gefur meiri þrýsting í flöskunni en venjan er fyrir Cava vín.

Vínpörun

  • Fiskur
  • Skelfiskur
  • Fordrykkur

Upplýsingar

  • Land: Spánn
  • Svæði: Spánn
  • Þrúga: Blandað
  • Árgerð: 2016
  • Áfengismagn: 12% 
  • Vínið er lífrænt

Viðurkenningar 

  • James Suckling: 91 point